Archive for May, 2008
Sveinbjörn – The Fisherman
Ætla að láta vaða og birta það hér opinberlega hversu lélegur veiðimaður ég er.
Smá forsaga :
Þannig er mál með vexti að ég fékk flugustöng og hjól og græjur í afmælisgjöf á seinasta ári, og er algerlega heltekinn af fluguveiði, sem er soldið skrýtið miðað við árangur minn sem ég mun útlista hér fyrir neðan :
1. Fyrsta ferð mín var fyrir rúmri viku síðan í Vífilstaðavatn. Fór í svolitlu roki og rembdist eins og rjúpan við staurinn að kasta flugunni 5 metra frá mér á meðan að e-h erlendi verkamaðurinn var að moka fiskinum upp 20 metrum við hliðin á mér með bensínstöðvarstöng.
———————————-
2. Önnur ferð mín var með Árna og Jóa í þjóðgarðinn á Þingvöllum. Eigi urðum við varir við fisk og fórum heim með hor í nös og öngul í bossa. Svo daginn eftir las ég nokkrar greinar um að menn hefðu verið að fá hann þarna rétt hjá staðnum sem við vorum á.
———————————-
3. Í þeirri þriðju endurtókum við leikinn og skelltum okkur á flekaskil atlantshafshryggjarins og enn á ný sjáum við ekki neitt líf en enn og aftur les maður daginn eftir á veiðisíðunum að menn hafi verið að veiða fínt á þessu svæði.
———————————-
4. Um seinustu helgi fórum við vinirnir í Andakílsá í Borgarfirði. Menn voru alveg einstaklega bjartsýnir um veiði helginnar og voru farnir að ræða um hvernig menn ættu að bera sig að við að verka allan þennan fisk sem við myndum landa. Ég efast um að þú sért hissa þegar ég segi að við veiddum ekki NEITT, við sáum ekki einu sinni fisk í öllu svæðinu, fyrir utan einn Kola sem var e-h að villast upp ánna bara til að senda mér gott fokk-jú merki svona áður en ég gafst upp. Enn einn ósigurinn.
———————————-
5. Svo í kvöld ákvað ég að bruna upp í Vífilstaðavatn aftur og sjá hvort manni myndi ekki ganga vel í þessari rjómablíðu sem að er úti núna. Ég mæti á svæðið, lýt yfir vatnið og anda djúpt að mér andanum og hugsa með mér hvað þetta eigi eftir að vera “Fökking Geðveikt” , fiskurinn að vaka útum allt og ekkert alltof margir við vatnið. Opna svo skottið, skelli mér í vöðlurnar og byrja að setja stöngina saman þegar ég uppgvöta að ég hafi gleymt veiðitöskunni sem innihélt veiðihjólið og allan pakkann. Sauð all svakalega á mér þegar ég áttaði mig á þessu, en náði þó að róa mig svo ég myndi ekki styggja fiskana fyrir nærstadda veiðimenn.
———————————-
Það er eitt sem hefur nagað mig soldið, þar sem ég hef ekki svo mikið sem fengið nart í þessum ferðum mínum:
Ætlað ég sé neðar í fæðukeðjunni en aðrir menn, þar sem ég reyni og reyni en án árangurs ?
3 comments

