Orðakæfa !

Er búið að segja gjörið svo vel ?

Archive for April, 2007

Detta af mér allar dauðar ……

Við feðgarnir fórum á leik KR og Njarðvíkur í gær.

Ég ákvað nú aðallega bara að fara þarna til að sjá vonandi góðan körfubolta og leyfa Benedikt að sjá hvernig þetta allt saman fer fram.

Benedikt er nú töluverður KRingur í sér þar sem við höfum nú búið í kringum, og í vesturbænum í 4 ár og ákvað ég nú að styðja KR eilítið í þessum leik svona útaf því, en samt ekki mikið.
En áður en ég vissi af var ég farinn að öskra og blóta þegar að eitthvað gekk ekki hjá KRingum, þvílík var stemmningin. Magnaður leikur og skemmtilegt lið.

Ég get þó lofað einu, að fari ég á leik með Meistaraflokk KR í fótbolta e-h tímann með Benedikt þá hef ég það ekki í mér að styðja þá, þar sem að maður er alinn upp með níðvögguvísum um KR og hvernig skal sniðganga stuðning við þá :)

Það er stór biti að kyngja að Benedikt vilji fara í fótboltaskóla hjá KR.

2 comments

Breyttir tímar !

Þarna er ég grannur og Benedikt feitur.

Bensi
Því er öfugt farið í dag !

4 comments

Tæpt var það !

Til Hamingju Íslendingar :)

Frétt af MBL

——-

3 comments