Orðakæfa !

Er búið að segja gjörið svo vel ?

Archive for October, 2006

Farinn, búið, bless !

Farinn til Madríd í 25 stiga hita og sól.

Megi ykkur vera kalt og með hor í nös !

2 comments

Viðbót

Jamm og jæja.

Konan ólétt af okkar þriðja barni og gengur allt saman vel !

Öllu er prangað upp á barnshafandi konur og þar með talið er
meðgönguyoga sem að Drífa er í. Datt mér þá í hug að tvinna
saman einu því vinsælasta í dag og nokkurskonar leikfimi :

Meðgöngu Bootcamp !

Er búinn að viðra þessa hugmynd við nokkra kollega mína en
einhverra hluta vegna hrista allir hausinn yfir þessari hugmynd
minni, þessir menn eru sko ekki með nef fyrir góðum hugmyndum.

Mun á næstu dögum fara í allar helstu líkamsræktarstöðvar og
bjóða þeim að kaupa þessa hugmynd mína. Þá eftir nokkra mánuði
verð ég og fjölskylda mín lögst í helgan stein í hollywood !

Vka í Madríd, og viti menn þá mun Kristinn R. Ólafsson
vera guide hjá okkur í túr sem við förum um Toleda

Veriði sæl (feimið veðurmanns veif)

4 comments