Orðakæfa !

Er búið að segja gjörið svo vel ?

Archive for September, 2006

BloggiBloggi !

Góðan daginn sagði gæjinn þegar að sprakk í honum maginn !

Langt síðan að ég hripaði e-h niður hérna en ákvað að henda inn lítill færslu í tilefni þess að já….hmm…langaði til þess.

Fer með vinnunni til Madrídar þann 12. okt, það verður magnað ! Þykir það leitt að helgina eftir sem ég verð þarna, þá verður viðureign Real-Madrid og Barcelona á Estadio Santiago Bernabéu.

Ætla að skoða margt og mikið á meðan ég er þarna úti.

Sótti um nýtt vegabréf í dag vegna væntanlegrar “útfarar” minnar, þótti mér það hreint ótrúlegt hvað það tók stuttan tíma. Einnig komst ég að því að ef þú átt ekki nein skilríki þarftu að fá tvo votta fyrir að þú sért þú !!

Breyttar áherslur hjá RÚV greinilega farnar að skila sér : HÉR

Vona ég að Sigmar Guðmundsson taki þetta mál rækilega fyrir í Kastljósinu.

Var spurður í gær hvort ég væri kominn með nokkur grá hár. Ég ansaði einfaldlega með einfaldri spurningu : “Ertu á fíknilyfjum ?”

Alls ekki neitt til í staðhæfingum fólks um að ég sé með smá bumbu, sé að verða sköllóttur og gráhærður. Mitt svar til þeirra er einfaldlega að ég sé með góða “frammistöðu”, sé að safna enni og sé að reyna að setja nýtt hártrend !

En jæja, þetta er er orðið gott að sinni !

p.s. Ein spurning til lesenda : Virkar commenta kerfið ?

3 comments