Archive for July, 2006
Gaman !
Var á ættarmóti um helgina !
Gaman í Golfi.
Gaman að syngja og spila með familíunni !
Gaman í góðu veðri !
Gaman í Slakka !
Gaman að sofa í tjaldi !
Gaman að spjalla við ættingjana !
GAMAN AÐ VERA KOMINN Í TVEGGJA VIKNA SUMARFRÍ !
Over & Out!
1 commentTil Sölu !
Er með Godin SD gítar til sölu og einnig Line6 Spider II 120W 2×10 Magnara.
Hægt er að skoða myndir af þeim hérna:
http://www.svennih.com/album/sale/
Tekið skal fram að bæði gítarinn og magnarinn eru sama sem ónotaðir þar
sem ég spila nær einungis orðið á kassagítar.
Selst saman á 71.000 Kr. eða:
Gítar : 36.000 Kr
Magnari : 35.000 Kr.
Ef einhver hefur áhuga getur sá hinn sami sent mér e-mail á sveinbjornh05@ru.is
1 commentWooooot !!!
Hvað er málið með það að fá kvef um miðjan Júlí ? Held að líkami minn haldi að það sé haust útaf veðráttunni !
1 commentVísitölumaður !
Í seinustu viku fékk ég símtal, þrjú kvöld í röð frá fyrirtæki útí bæ sem heitir Gallup og var beðinn um að svara skoðanakönnun hjá þeim.
Eftir þriðja símtalið fór ég nú að velta þessu fyrir mér og spurði sjálfan mig hvort þetta gæti verið mikil tilviljun að lenda í úrtaki eða þá að maður sé svona rosalega mikill meðal Jón. Að vísu er erfitt að neita því fyrst að ég á tvö börn og ek um á “station” bíl, þannig að eina sem að vantar í þennan pakka er hundur og tjaldvagn(skuldahali).
Annars er maður bara nokkuð góður og ef að einhvern langar til að vera góður við mig þá má sá sami bjóða mér á tónleika hjá Pearl Jam sjá hér: Last World Tour
Alltílæ bless!
No comments

