Orðakæfa !

Er búið að segja gjörið svo vel ?

Archive for May, 2006

OMG LOL !!!11!1!111one!11elevnen

Held að þetta sé fyndnasti djókur sem ég hef séð í allri þessari kosningabaráttu !

 

Bwahahahahahah

43 comments

Myspace !

Er það svona sem að þetta myspace virkar ?

 Myspace The Movie!

Edit kl 17:15. 

Óli Grís bara á myspace: Óli Grís

Bara allir á Myspace greinilega hehe

1 comment

Biografen og Eurovision!

Ég og Drífa á frumsýningu Da Vinci Code í gær í boði vinnunar og fannst hún barasta ágæt, en hún náði alls ekki að “fanga” mig jafnmikið og bókin gerði á sínum tíma. Það bara einfaldlega vantaði eitthvað “ingridient” í hana sem ég næ ekki alveg að lýsa. Annars held ég barasta að sumar bækur séu ekki til þess sniðnar að þær verði góðar á hvíta tjaldinu. Ég væri nú samt til í að sjá bókina “Englar og Djöflar”(eftir Dan Brown einnig) á hvíta tjaldinu því að fannst mér hún öllu hraðari og meira spennandi.

En nóg af bíó tali. Sylvía Night komst ekki áfram eins og við var búist en finnst mér það nú þó gott að hún hafi náð að hneyksla eitthvað af þessu evróvisjón liði þarna úti. Það er nokkuð ljóst að við eigum aldrei eftir að vinna þessa keppni, þó sér í lagi eftir að allar austur Evrópu þjóðirnar byrjuðu að rotta sig saman, ég meina COME ON sáuð þið flutninginn frá Litháen ? Annars fékk ég nú nettan kjánahroll yfir flestum lögunum í þessari blessuðu undankeppni.

En hvað sem því líður, þá ætla ég að fara að baka Flatbökur og búa heimilið undir evróvisjón kvöld sem að mestu leiti stendur af kjánahroll og eyrnaverk.

4 comments

Vote Quimby ?

Hef verið að fara yfir stefnumál stjórnmálaflokkana hérna í Reykjavík í gær og í dag og verð að segja að þetta er allt alveg rosalega keimlíkt. Auk þess sem að maður sér að það er “gósen” tíð hjá auglýsingastofum og ljósmyndurum. Biturleikinn kemur líka upp í manni þegar að maður sér umræðuna um úrræði fyrir börn að loknu fæðingarorlofi fyrst að Hildur er núna loksins komin með leikskólapláss í sama leikskóla og Benedikt.

 

Fór að líta á þetta algerlega frá mínu sjónarhorni í staðinn að vera að pæla hvað yrði gott fyrir aðra en mig og mína og komst að því að ég er algerlega á öndverðu meiði(grunar að þetta eigi við um það sem ég ætli að segja) varðandi hvað maður á að kjósa því að sumt líka mér ekki við hjá þessum en sumt líkar mér við og aftur í kross.

 

What to do? What to do ?

Same shit different name ?

 

Einhverjar uppástungur ?

4 comments

Afmæli og fleira !

Þá er ég loksins búinn að þýða þetta þema sem ég ákvað að nota. Samt vantar nú ennþá nokkra linka inn og svona smotterí.

Annars er EVE-Online þriggja ára í dag og af því tilefni býður vinnan í afmælisveislu í kvöld. Ekki nóg með það heldur bjóða þeir konum starfsmanna og konunum í vinnunni í þriggja tíma SPA í baðhúsinu fyrr um daginn. Óhætt að segja að Drífa sé ánægð með það :) Mér skilst að BUFF verði að spila í þessari veislu þannig að það verður mjög gaman !

Sjálfur byrjaði ég að spila leikinn í júní 2003 og byrjaði svo að vinna við leikinn 13. mars síðastliðinn. Ég er ennþá svolítið að átta mig á því og brosa yfir því að ég skildi hafa fengið vinnu út á það að hafa spilað tölvuleik í svolítinn tíma haha, (hver hefði haldið það þegar maður var að “nördast” í gamla daga!)
Annars ég er að fíla vinnuna alveg í botn og hún verður bara skemmtilegri og skemmtilegri með tímanum !

Læt þetta duga í bili

No comments

Þabbarasona!

Eins og þið takið kannski eftir er ég ennþá að reyna að vinna í þessu.

Þarf að endurþýða þetta nýja þema sem ég ætla sennilegast að nota og
svo henda inn fleiri tenglum og hreinsa upp óþarfa drasl.

En gaman verður á laugardaginn !  Er nefnilega að fara í þriggja ára afmæli
skal ég segja ykkur!

4 comments