Orðakæfa !

Er búið að segja gjörið svo vel ?

Archive for the 'Vinnan' Category

Viðbót

Jamm og jæja.

Konan ólétt af okkar þriðja barni og gengur allt saman vel !

Öllu er prangað upp á barnshafandi konur og þar með talið er
meðgönguyoga sem að Drífa er í. Datt mér þá í hug að tvinna
saman einu því vinsælasta í dag og nokkurskonar leikfimi :

Meðgöngu Bootcamp !

Er búinn að viðra þessa hugmynd við nokkra kollega mína en
einhverra hluta vegna hrista allir hausinn yfir þessari hugmynd
minni, þessir menn eru sko ekki með nef fyrir góðum hugmyndum.

Mun á næstu dögum fara í allar helstu líkamsræktarstöðvar og
bjóða þeim að kaupa þessa hugmynd mína. Þá eftir nokkra mánuði
verð ég og fjölskylda mín lögst í helgan stein í hollywood !

Vka í Madríd, og viti menn þá mun Kristinn R. Ólafsson
vera guide hjá okkur í túr sem við förum um Toleda

Veriði sæl (feimið veðurmanns veif)

4 comments

Afmæli og fleira !

Þá er ég loksins búinn að þýða þetta þema sem ég ákvað að nota. Samt vantar nú ennþá nokkra linka inn og svona smotterí.

Annars er EVE-Online þriggja ára í dag og af því tilefni býður vinnan í afmælisveislu í kvöld. Ekki nóg með það heldur bjóða þeir konum starfsmanna og konunum í vinnunni í þriggja tíma SPA í baðhúsinu fyrr um daginn. Óhætt að segja að Drífa sé ánægð með það :) Mér skilst að BUFF verði að spila í þessari veislu þannig að það verður mjög gaman !

Sjálfur byrjaði ég að spila leikinn í júní 2003 og byrjaði svo að vinna við leikinn 13. mars síðastliðinn. Ég er ennþá svolítið að átta mig á því og brosa yfir því að ég skildi hafa fengið vinnu út á það að hafa spilað tölvuleik í svolítinn tíma haha, (hver hefði haldið það þegar maður var að “nördast” í gamla daga!)
Annars ég er að fíla vinnuna alveg í botn og hún verður bara skemmtilegri og skemmtilegri með tímanum !

Læt þetta duga í bili

No comments

Smá stubbur!

Var að vinna í 16 tíma í gær og í átta tíma í dag.

Óhætt að segja að maður sé svolítið dasaður, en ég kom því nú samt í verk
að klára þýðinguna á þessu þema sem að ég er að nota. Megið endilega kommenta
ef að þið finnið hræðilega þýðingu eða enga þýðingu.

En anýhú, þá er bara fyrir vellauðuga menn og hvítflibba að fylla bílinn sinn af bensíni. Var að dæla í gær fyrir þúsund kall og ég hélt dælunni inni í nokkrar sekúndur og þá átti ég að vera kominn með bensín fyrir þúsund krónur! Svo er náttúrulega alltaf gaman að heyra í fréttunum þegar að e-h olíufélagið ríður á vaðið með hækkun þá er alltaf fylgjandi í fréttinni að hin “fylgdu strax eftir með hækkanirnar” .
Við erum svo “rík” að þetta er farið að líta út eins og “öfugt verðstríð”
Eins gott að “ljónabíllinn” okkar eyði bara 7-8 lítrum á hundraði.

Mar endar eflaust á svona kagga:

Honda Insight

Over & out!

3 comments